Ræktin að taka á sig mynd

Fyrr í vetur sögðum við frá því þegar við misstum nánast allt ræktardótið okkar og var mikil sorg yfir því.

Nú horfir allt til betri vegar. Skólinn fékk góðan styrk úr minningarsjóði Baldvins Rúnarssonar sem gerði okkur kleift að kaupa eitthvað að nýju dóti. Við viljum þakka þeim sem standa að minningarsjóðnum kærlega fyrir styrkinn sem kom svo sannarlega að góðum notum. Einnig viljum við þakka Norður fyrir að taka vel á móti okkur en við gátum keypt ræktardót af þeim á góðu verði ásamt því að fá eitt og annað í kaupbæti. Einnig hafði fólk samband við okkur og vildi gefa okkur tæki og tól.

Það er afskaplega góð tilfinning að finna fyrir slíkum velvilja í garð skólans. Við munum halda ótrauð áfram að byggja upp aðstöðuna í skólanum og gera hana eins góða og völ er á því þessir krakkar eiga það svo sannarlega skilið.