VIÐBRÖGÐ Í GRUNNSKÓLUM ÞEGAR TVÍSÝNT ER UM FÆRÐ OG VEÐUR

Mikilvægt er að foreldrar fylgist vel með veðri og færð. Ef þeir treysta börnum sínum ekki í skólann er óskað eftir því að þeir hringi og láti vita. Síminn í skólanum er 462-4068.
Í einstaka tilfellum er skólahaldi aflýst og kemur þá tilkynning um það á Rás2 að morgni ásamt því að tilkynning verður birt hér á heimasíðunni.
Við tvísýnar aðstæður sem geta verið breytilegar eftir bæjarhlutum þá er það ávallt foreldra/forráðamanna að meta hvort þeir treysti börnum sínum í skólann.

 

1.      Meginreglan er sú að leik- og grunnskólar eru opnir nema lögregla gefi út tilmæli um að fólk sé ekki á ferli.

2.      Ef skólahald fellur niður þá sendir skóladeild tilkynningu þess efnis á RÚV og Bylgjuna fyrir kl. 7.00 að morgni.

3.       Öllum skólum ber að setja tilkynningu á heimasíðu í þeim tilfellum sem tvísýnt er með veður og færð eða þegar skólahald er fellt niður. Einnig skulu skólar senda út póst í Mentor með sömu tilkynningu.

4.       Við tvísýnar aðstæður sem geta verið breytilegar eftir bæjarhlutum þá er það ávallt foreldra/ forráðamanna að meta hvort þeir treysti börnum sínum í skóla.

5.       Ef skólahaldi er ekki aflýst er tryggt að starfsfólk sé til staðar á auglýstum skólatíma í öllum skólum. Börn sem koma í skólann eru ekki send heim áður en skólatíma lýkur.