Lærum í leik
Lærum í leik fór fram hér í Hlíðarskóla og tókst vægast sagt vel. Nemendur þurftu að leysa þrautir fimm stofum í anda „escape room“. Fyrir hverja þraut sem þau leystu komust þau úr herberginu sem þau voru í og með vísbendingu sem voru stafir. Stafirnir voru síðan notaðir til að setja saman leyniorð sem nemendur sögðu Karen frá og fengu í kjölfarið blað með spurningum og ipad. Rétt svör við spurningunum mynduðu kóða sem nota átti til að opna ipadinn. Sá hópur sem myndi fyrstur ná að opna ipadinn myndi sigra. Mikil spenna var þegar allir hópar voru komnir í matsalinn, hver í sínu horni, að reyna opna sinn ipad.





Undirbúningur dagsins var skemmtilegur en dagurinn sjálfur ennþá betri, miðað við virkni og þátttöku má áætla að svipað fyrirkomulag verði endurtekið við tækifæri. Myndir frá deginum má finna hér.