Vorleikar, áheitahlaup, þemadagar og útskrift

Seinustu vikur hafa verið viðburðaríkar hér í skólanum. Í lok apríl voru haldnir Vorleikar. Um að ræða árlegan viðburð í skólanum sem hefur skipað fastan sess. Nemendur keppa í óhefðbundnum þrautum þar sem reynir á mismunandi færniþætti og heppni. Vorleikarnir heppnuðust mjög vel og enduðu á Áheitahlaupi nemenda og starfsfólks. Áheitahlaupið fer þannig fram að í aðdraganda hlaupsins ganga nemendur á milli starfsfólks og biður um áheit fyrir hverja ferð sem þeir hyggjst ganga/hlaupa upp heimreiðina að skólanum. Einnig söfnuðu nokkrir nemendur áheitum heima fyrir, meðal foreldra og annarra aðstendenda . Áheitasöfnun gekk vel og nemendur stóðu sig einnig virkilega vel í hlaupinu og náðu að safna samtals 225.400 krónum. Að þessu sinni ákváðu nemendur að styrkja ADHD samtökin og verður peningurinn afhentur samtökunum 28.maí næstkomandi. Við viljum þakka aðstandendum nemenda kærlega fyrir þeirra framlög til söfnunarinnar.

Hreinsunardagur var hér í upphafi maí. Þann dag nýttu nemendur til að fegra umhverfið okkar. Fjaran var gengin í norður og suður og söfnuðu nemendur rusli sem skolað hafði á land ásamt því sem dagurinn var nýttur í að laga til á skólalóðinni. Þemadagar voru svo haldnir 13. og 14. maí og var þemað að þessu sinni sjálfbærni. Nemendur fengu fræðslu um hugtakið auk þess sem unnið var að ýmsum verkefnum. Málaðir voru leikir á skólalóðina, merki skólans var málað á stafn skólabyggingarinnar, unnið var að því að smíða kofa undir trjáhúsinu, nemendur lærðu að kveikja eld og grilla sér brauð auk þess sem þeir fóru í ratleik um nágrennið. Hin árlega bátakeppni fór fram. Nemendur hafa í vetur verið að hanna og smíða báta sem þeir hafa lagt mikla natni við að gera sem glæsilegasta. Keppnin var æsispennandi og fór svo að lokum að mjótt var á munum milli sæta. Auk verðlauna fyrir hraðskreiðasta bátinn voru veitt „Skemmu verðlaun“ sem viðurkenning fyrir þá miklu vinnu sem nemendur lögðu í smíði og hönnun bátanna.

Vorinu fylgja gjarnan breytingar og nú í ár er engin undantekning á því. Nokkrir nemendur útskrifast við skólaslit sem fara fram 5. júní en auk þess útskrifaðist einn nemandi í þriðjabekk í seinustu viku. Við óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta um leið og við þökkum fyrir góð kynni og gott samstarf.

Sólveig uppeldisfulltrúi hættir störfum nú um mánaðarmót og eru henni færðar góðar kveðjur og þakkir fyrir allt hennar starf við skólann.

Myndir frá vordögum má finna hér fyrir neðan:

Vorleikar

Þemadagar