Lærum í leik

Fimmtudaginn 29 janúar síðast liðinn vorum við með skertan dag sem bar heitið Lærum í leik. Dagurinn gekk vonum framar og sló heldur betur í gegn hjá nemendum. Kennarar undirbjuggu þrautir í fimm stofum sem nemendur áttu að leysa til að fá stafi. Stafirnir voru síðan notaðir til að setja saman leyniorð sem nemendur sögðu Karen frá og fengu í kjölfarið blað með spurningum og ipad sem þau gátu opnað með svörum við spurningunum. Mikil spenna var þegar allir hópar voru komnir í matsalinn, hver í sínu horni, að reyna opna sinn ipad.

Undirbúningur dagsins var skemmtilegur en dagurinn sjálfur ennþá betri, miðað við móttökur má áætla að svipað fyrirkomulag verði endurtekið við tækifæri. Myndir frá deginum má finna hér.