Útivistardagur Hlíðarskóla
Fimmtudaginn 12 febrúar var útivistardagur hjá okkur og nutu allir nemendur og starfsmenn dagsins í Hlíðarfjalli. Við gátum ekki beðið um betra veður, það var kalt en gott næstum allan tímann en kom smá vindur og snjókoma síðasta rúmlega klukkutímann. Við deildum fjallinu með öðrum skóla sem var mjög skemmtilegt þar sem margir nemendur þekktu einhverja eða áttu systkini þar. Okkar nemendur nutu dagsins ýmist á skíðum, gönguskíðum eða sleðum og fóru bæði nemendur og starfsfólk glaðir heim eftir daginn þar sem hann gekk glimrandi vel. Fleiri myndir af deginum er hægt að skoða hér.
