Febrúar mánuður
Þó febrúar sé stysti mánuður ársins þá var hann skemmtilegur og fróðlegur hjá okkur í Hlíðarskóla.
12 febrúar var útivistardagur þar sem nemendur og starfsfólk skellti sér í Hlíðarfjall en hægt er að lesa frétt um það og skoða myndir aðeins neðar á síðunni.
Föstudaginn 6 febrúar og þriðjudaginn 10 febrúar var Þelamörk lokuð og nýttum við tækifærið og gerðum aðra skemmtilega hluti í stað íþrótta- og sundtímans. Á föstudeginum skelltum við okkur öll á skauta sem gekk ótrúlega vel þrátt fyrir að margir hafi verið óreyndir eða með litla skautareynslu.

Á þriðjudeginum gerðumst við svo lánssöm að geta farið í fimleikasalinn við Giljaskóla þar sem nemendur stóðu sig með prýði, gengu vel um og skemmtu sér ótrúlega vel. Við eigum flottann og orkumikinn nemendahóp hér í skólanum og sást það vel á þessum degi.

Valtímarnir okkar voru á sínum stað þar sem ásamt öðru var boðið uppá macrame, hesta, bogfimi og að kíkja yfir til nágrannanna sem eiga ýmisleg skemmtileg og áhugaverð dýr. Einnig fengu nemendur fræðslur hingað í skólann, meðal annars frá Þorgrími Þráinssyni.
16 febrúar var bolludagur og fengu nemendur og starfsmenn hver eina bollu í hádeginu en í boði var að velja á milli vatnsdeigs- eða gerbollu. Eftir þann dag fóru nemendur í vetrarfrí og mættu endurnærðir vikuna á eftir þar sem upp komu skemmtilegar umræður um öskudaginn, búninga og hvað væri versta og besta nammið.
Hægt er að skoða myndir hér.