Árshátíð
Árshátíð skólans fór fram fimmtudaginn 26. mars. Óhætt er að segja að hún hafi verið mjög vel heppnuð. Allir bekkir höfðu unnið að gerð stuttmynda ásamt því sem nemendahópurinn allur sameinaðist um að skrifa handrit að og leika í mynd þar sem starfsfólk skólans var tekið fyrir af mikilli kímni. Um var að ræða samtals fjórar stuttmyndir auk spurningaleiks á léttu nótunum.
Nemendur tóku sig einnig til og bökuðu muffins, pizzasnúða, döðlugott og kornflekstoppa sem þeir seldu til fjáröflunar fyrir vorferðalög þeirra sem fyrirhuguð eru við lok skólaársins.
Hjartans þakkir kæru foreldrar og aðrir aðstandendur sem sáuð ykkur fært að koma og gleðjast með okkur.
Skólinn er nú í páskafríi og hefst kennsla að páskum loknum þriðjudaginn 7.apríl samkvæmt stundatöflu
