Símafrí í Hlíðarskóla
Skólaárið 2024-2025
- Nemendur skulu ekki nota síma á skólatíma, hvorki í skólanum né á skólalóð. Leiðin milli skóla og íþróttamannvirkja telst til skólalóðar. Þetta á einnig við önnur snjalltæki sem trufla kennslu og einbeitingu (t.d. snjallúr).
- Á föstudögum er nemendum á unglingastigi heimilt að nota síma í frímínútum á skilgreindu svæði.
- Símar og önnur snjalltæki eru ávallt á ábyrgð eigenda sinna.
- Komi nemendur með síma í skólann, þá skulu þeir setja símana í körfu sem geymd er í læstum skáp. Símar skulu ekki geymdir í fatnaði nemenda eða á borðum.
Undantekningar:
- Nemendum sem þurfa á síma að halda vegna heilsufarslegra ástæðna (t.d. vegna sykursýkismælinga) er heimilt að hafa síma á sér, en aðeins til notkunar í þeim tilgangi.
Viðbrögð við notkun síma í leyfisleysi:
Sé reglum um símafrí ekki fylgt eftir fær nemandi áminningu/samtal við kennara og tækifæri til setja símann á viðeigandi stað. Við endurtekið brot er nemanda boðið að velja á milli þess að:
- A. afhenda símann sem verður geymdur á skrifstofu skólastjórnanda til loka skóladags nemanda.
- B. fara á skrifstofu skólastjórnanda og bíða þar uns foreldri hefur komið í skólann til að ljúka afgreiðslu málsins.
Við ítrekuð brot á símafríi er boðað til fundar með nemanda og foreldrum og skráning gerð í Mentor