Skólaráðsfundur 18.september

Starfsáætlun nemenda og réttindaráðs Hlíðarskóla 2026-2027

1.Fundur 18.9.2026: Mættir eru: Stefán, Inga, Magnús, Atli og Valdimar Skólastjóri.

  • Fyrsta mál var að skipa í embætti: formaður og varaformaður, ritari
    • Inga ritari, Stefán formaður, Atli varaformaður, Maggi meðstjórnandi, Valdi(skólastjóri) fundarstjóri. 

  • Þarfagreining: Hvað viljum við skoða og vita um skólastarfið
    • Fá hugmyndir að umbun, gera könnun hvað gerir skólann betri, 
    • Dóta dagur, tölvutími, öðruvísi morgunmatur, ísbúðaferð, bíó dag, fara í skautahöll, frjálst nesti, frjáls tími, daladýrð, sleppa sund, velja mat, subway, síma dagur, dýra dagur, minecraft, fortnight, bökunar keppni, kahoot dagur. Frjáls íþrótta tími,
      • Skólaráð ákveður að hafa umbun á 300 stiga fresti. Hafa blað frammi til að sýna hvaða umbun er næst. Byrjum á frjálst nesti svo frjálsan íþróttatími, Frjáls fyrstu 2 tímar á föstudegi, Öðruvísi morgunmatur, Kahoot dagur, 

  • Hvernig er best að fá vita óskir nemenda? 
    • Fara í stofur og spyrja, könnun á netinu, hugmynda kassi

  • Athuga hvort allar stofur séu með barnasáttmála sem tryggir “réttindi og óskir nemenda” 12.gr barnasáttmálans um rétt barna til að láta skoðanir sínar í ljós. 
    • Stofa 1 bekkjarsáttmála
    • Stofa 2 er með tilbúin en þarf að koma honum upp
    • Stofu 3 vantar sáttmála en hann var kominn í lok dags.
    • Stofa 4 er með sáttmála upp á vegg.

Fundi slitið