Bamba-hús rís á skólalóð Hlíðarskóla

Nú er hafið spennandi og skapandi þróunarverkefni þar sem Guðmundur smíðakennari leiðir nemendur saman í sameiginlegu verkefni þar sem nemendur smíða svokallað bamba-húsi.

Verkefnið hófst þegar skólinn fékk að gjöf nokkra bamba – en bambar eru stálgrindur sem venjulega eru utan um plasttanka (IBC-tanka). Við höfðum séð fyrirmyndir af svo kölluðum bamba húsum og vildum spreyta okkur á að gera eitt slíkt. Þetta myndi líka nýtast skólanum því oft er pláss að skornum skammti og því kæmi geymslu skúr sér vel á skólalóðinni.

Bambar

Með hjálp gerfigreindar var hafist handa við að undirbúa verkefnið. Við erum sátt með niðurstöðuna. Húsið verður klætt að utan með timbri þar sem börkurinn snýr út – þannig að húsið minnir á náttúrulegt, hrátt tré og fellur vel inn í umhverfið. Þakið verður A-laga með bárujárni og byggingin verður á einni hæð, einföld og traust.

Það sem gerir verkefnið sérstaklega skemmtilegt er að allir nemendur koma að smíðinni 3-10.bekkur. Hver og einn fær hlutverk við hæfi:
– mælingar og skipulag
– samsetningu grindar
– festingar og styrkingar
– klæðning, frágang og útlitshugsun

Þannig verður verkefnið ekki aðeins smíðaverkefni, heldur lærdómsferli um samvinnu, lausnaleit, endurvinnslu og sjálfbærni.

Markmiðið er ekki bara að byggja hús – heldur að byggja þekkingu, sjálfstraust og sjálfbæra skólamenningu, þar sem hugmyndir nemenda verða að raunverulegum hlutum í umhverfi skólans.

Meðfylgjandi eru myndir af áætlun verkefnisins, hugmyndum að mögulegri lokaútkomu og einnig myndir frá vinnu nemenda.

Við erum afskaplega stoltur af þessu verkefni þar sem við sýnum nemendum að hugmyndir geta orðið að veruleika ef maður er tilbúin að leggja á sig vinnuna og láta verkin tala.

Við munum sýna ykkur frá framvindu mála með þetta verkefni. Einnig langar okkur að athuga hvort það eru einhverjir velunnarar þarna úti sem langar að leggja skólanum lið með þetta stórskemmtilega verkefni. Svona óhefðbundið verkefni felur töluverðan kostnað í sér þó svo að margt efni er endurnýtt. Ef þú vilt aðstoða okkur í þessu frumkvöðlastarfi þar sem við reynum að koma með spennandi og skapandi verkefni fyrir nemendur þá endilega sendu línu á Valdimar skólastjóra valdimar@akmennt.is og við finnum út hvernig þú getur lagt skólanum lið við verkefnið.