Skólaráðsfundur 29.maí
Haldinn var skólaráðsfundur hér í Hlíðarskóla 29.maí s.l.
Valdimar skólastjóri kynnti aðgerðaráætlun Hlíðarskóla til að verða réttindaskóli UNICEF næsta vor.
Nýtt nemenda og réttindaráð tók til starfa og við kvöddum réttindaráðið sem hafði starfað á þessu skólaári og þökkuðum þeim fyrir vel unnin störf. Einnig lætur foreldri af störfum í skólaráði og mun skólinn því þurfa að finna nýtt foreldri til að starfa í skólaráði næsta haust.
Við viljum þakka skólaráði fyrir vel unnin störf á árinu og hlökkum til að takast á við verkefni næsta skólaárs.