Skólaslit
Þriðjudaginn 9. júní klukkan 10:00 verða skólaslit í Hlíðarskóla haldin og viljum við bjóða foreldrum að koma og eiga þessa stund með okkur.
Við hvetjum alla til að mæta með börnunum sínum og slíta skólaárinu saman með starfsfólki og öðrum nemendum. Skólaslitin eru mikilvæg stund þar sem við lítum yfir veturinn, fögnum því sem áunnist hefur og kveðjum skólaárið og förum glöð út í sumarið.
Suma nemendur og foreldra sjáum við aftur að hausti þegar nýtt skólaár hefst, en aðra nemendur og foreldra kveðjum við nú þegar þau halda áfram inn í nýjan kafla í lífi sínu. Við erum þakklát fyrir samveruna, samstarfið og allt það sem þetta skólaár hefur fært okkur.
Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga notalega stund saman.