Áheitahlaup

Miðvikudaginn 27. maí fór hið árlega góðgerðarhlaup Hlíðarskóla fram.

Þetta var í fimmta skipti sem nemendur í Hlíðarskóla leggja málefnum barna á landinu lið. Áður hafa þeir styrkt félag aðstandendra langveikra barna, krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis, ADHD samtökin í fyrra. Fyrir tveimur árum söfnuðu þau fyrir bættri aðstöðu á skólalóðinni hér í skólanum.

Nemendur skólans fara upp og niður heimreið skólans, um það bil 500 m. Hver ferð er því kílómeter og þeir hafa klukkutíma til að fara eins margar ferðir og þeir geta gangandi eða hlaupandi.

Að þessu sinni var það barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri sem krakkarnir söfnuðu fyrir. Samtals söfnuðust 205.700 krónur sem vonandi koma að góðum notum.

Gestur Guðrúnarson þjónustustjóri á SAk veitti styrknum viðtöku fyrir hönd barnadeildarinnar.

.

Hér eru fleiri myndir frá hlaupinu