Skólasetning

Skólasetning fer fram mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Þess er farið á leit við nemendur að þeir mæti í fylgd foreldra eða forráðamanna sinna.

Við skólasetninguna fá fjölskyldur afhentar allar helstu upplýsingar er varða komandi skólaár, m.a. stundatöflur, upplýsingar um skipulag á akstri til og frá skóla, skólareglur og skóladagatal.

Þá eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að eiga samtal við Signýju, fjölskylduráðgjafa skólans, í þeim tilgangi að fá úthlutað viðtalstíma vegna fyrirhugaðs foreldrasamstarfs á skólaárinu.

Hlökkum til að taka á móti ykkur.

Skóli hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25.ágúst.