Skólastarfið byrjar með krafti
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum greindist mygla í efra húsi skólans, Skildi. Það þýðir að tímabundið hefur þrengt að okkur og við þurfum að aðlaga skólastarfið að breyttum aðstæðum.
Umsjónarmenn fasteigna Akureyrarbæjar brugðust hratt og vel við og vinna við húsnæðið fór strax af stað. Hvað sú vinna mun taka langan tíma höfum við ekki upplýsingar um en vonandi skýrist það á næstu dögum.
En þegar svona kemur upp að þá kemur í ljós hversu mikilvæg það var að fara í uppbyggingu á útisvæði skólans. Útisvæðið var ekki glæsilegt fyrir nokkrum árum en Akureyrarbær hefur bætt verulega í og sú fjárfesting er heldur betur að skila sér. Við höfum frábær leiksvæði, gróðurhús, góða möguleika til útináms og síðast en ekki síst einstaka náttúru allt í kringum okkur.






En þó að þrengt sé að okkur í húsnæðismálum að þá byrjaði skólastarfið með krafti í dag.
Við búum svo vel að eiga frábært og lausnamiðað starfsfólk sem er staðráðið í að veita nemendum bestu mögulega þjónustu þrátt fyrir að stór partur af aðstöðu Hlíðarskóla sé dottinn út um óákveðinn tíma. Í mínum huga er starfsfólk Hlíðarskóla á heimsmælikvarða þegar kemur að því að vinna með nemendum með margþættan vanda og það sá ég svo skýrt í dag. Okkar fyrstu dagar hér í skólanum fara í að hrista hópinn saman og mynda liðsheild. Vinna í tengslamyndun svo að hér myndist traust og gagnkvæm virðing milli starfsfólks og nemenda. Þeir nemendur sem voru hérna hjá okkur seinasta vetur komu inn með mikilli ró og voru flottar fyrirmyndir fyrir nýja nemendur. Nýjir nemendur munu þurfa tíma til að aðlagast og læra inn á hlutina í Hlíðarskóla en hafa flottar fyrirmyndir í eldri nemendum.
Við munum gera okkar allra besta til þess að nýta umhverfið eins vel og við getum til framúrskarandi skólastarfs. Vissulega hefðum við kosið að hefja skólaárið við aðrar aðstæður.
Skóli og skólastarf þarf gott og hentugt húsnæði, en það er ekki húsnæðið eitt og sér sem skapar töfra skólastarfsins. Töfrarnir verða til í fallegum og heilbrigðum samskiptum nemenda og starfsfólks, í góðum skólabrag og í ögrandi og fjölbreyttu námsumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til að vaxa, takast á við áskoranir og njóta sín. Þar eru einkunnarorð skólans gleði, virðing og jákvæðni er haft að leiðarljósi.
Valdimar Heiðar Valsson
Stoltur skólastjóri Hlíðarskóla

