Skólaráðsfndur 2.október
Skólaráðsfundur 02.10.2026
Mæting : Valdimar, Guðmudur, Stefán, Halldór og Sonja fulltrúi foreldra var á Teams
Svanur fulltrúi nærumhverfis afboðaði komu sína.
Mál á dagskrá:
- Kynning á skólanámskrá og starfsáætlun
Starfsaaetlun-Hlidarskola-2026-2027.pdf - Skolanamskra-Hlidarskola.pdf
Farið er yfir starfsáætlun skólans. Hefur farið í gegnum og verið samþykkt af fræðslu og lýðheilsusvið. Rætt er um skóladagatalið. Óskað er eftir nokkrum breytingum. 20.nóvember er uppbrotsdagur og er óskað eftir að breyta því í venjulegan dag. Starfsdagur sem að var 9.febrúar er færður. Ástæða breytinga er vegna starfsmannaferðar í endurmenntunarferð til Prag.
Vorleikar færist um mánuð. Ákvörðun um þessar breytingar er samþykkt einróma.
Valdimar mun senda ákvörðun um breytingar á fræðslu og lýðheilsusvið.
Fara yfir skólareglur - Almennar-skolareglur-Hlidarskola.pdf
Farið er yfir skólareglur. Reglur einróma samþykktar. - Endruskoðun á stefnu skólans.
Skolanamskra-Hlidarskola.pdf bls 6
Farið er yfir stefnu skólans. Valdimar kemur með tillögu að einföldum texta. Það er samþykkt að farið verði í þá vinnu.
Texti í stefna og meginmarkmið þarf lagfæringu. Innihaldið skal haldast óbreytt og texti verði yfirfærður, einfaldaður og lagaður. Þær tillögur eru samþykktar einróma. - Skóladagatal og breytingar.
Hlidarskoli-skoladagatal-26-27-endurskodad.pdf
Rætt er um skóladagatalið. Óskað er eftir nokkrum breytingum. 20.nóvember er uppbrotsdagur og er óskað eftir að breyta því í venjulegan dag. Starfsdagur sem að var 9.febrúar er færður. Ástæða breytinga er vegna starfsmannaferðar í endurmenntunarferð til Prag.
Vorleikar færist um mánuð. Ákvörðun um þessar breytingar er samþykkt einróma.
Valdimar mun senda ákvörðun um breytingar á fræðslu og lýðheilsusvið. - Önnur erindi sem hafa komið í upphafi skólaárs.
Valdimar hefur það frá smið að framkvæmdir sem að standa yfir í Skildi séu áætlaðar að taka um 2 vikur og geti húsið verið opnað aftur til notkunar eftir það.
Nemendaráð hittist fyrir 2 vikum og fengu hugmyndir af umbunum fyrir Tröllastig og eru að vinna í að undirbúa skjal til að sýna öðrum nemendum sem að mun hanga inn í eldhúsi.
Hlíðarskóli vinnur að því að verða réttindaskóli Unicef og eru að vinna samkvæmt aðgerðaáætlun. Stefnt verði að því að Hlíðarskóli leggi inn formlega beiðni og ef allt gengur eftir verður hlíðarskóli fyrsta sérúrræði á Íslandi til að hljóta titilinn réttindaskóli Unicef.
Fundi slitið.