Framboðsfundur vegna bæjarstjórnarkosninga

Föstudaginn 8. maí var efnt til fundar með fulltrúum allra stjórnmálaframboðanna sem bjóða fram á Akureyri til bæjarstjórnarkosninga. Í aðdraganda fundarins unnu allir nemendur verkefni sem miðuðu að því að fá betri skilning á hlutverki bæjarstjórnar Akureyrar og þeim fjölmörgu verkefnum sem liggja í höndum þeirra sem stjórna. Í framhaldinu undirbjuggu allir nemendur spurningar sem þau vildu fá svör við frá frambjóðendum. Spurningarnar voru vel ígrundaðar og tóku á mörgu sem brennur á nemendum, bæði hvað varðar nærumhverfi þeirra, bæjarfélagið í heild að ógleymdum skólamálum. Nemendaráð/réttindaráð tók að því loknu við spurningunum og valdi úr þeim þær sem þóttu mikilvægastar.
Fundurinn var vel sóttur af gestum og voru meðal annars þrír alþingismenn gestir í salnum og þar af einn ráðherra. Nemendaráðið stjórnaði fundinum og þóttu standa sig með mikilli prýði, lásu upp spurningar og gættu þess að öll framboð fengju jafn margar mínútur til að svara til að gæta jafnræðis.
Þrátt fyrir að nemendur hafi enn ekki kosningarétt þótti ástæða til að efna til “skuggakosninga” þar sem hver nemandi fékk atkvæðaseðil og mátti greiða atkvæði sitt til einhvers hinna átta framboða.
Niðurstöður skuggakosninganna liggja fyrir og var það L listinn sem fékk flest atkvæði, en aðeins einu atkvæði munaði á þeim og S lista Samfylkingarinnar og V lista Vinstri grænna sem hlutu jafn mörg atkvæði.
Hér má sjá fleiri myndir frá fundinum.