Þemadagar í Hlíðarskóla – Draumalandið

 

Þemadagar hafa staðið yfir í Hlíðarskóla þessa vikuna þar sem nemendur hafa unnið að fjölbreyttu og skapandi verkefni. Verkefnið fólst í að hanna eigið land frá grunni og móta allt sem því fylgir, meðal annars tungumál, stjórnarskrá, þjóðfána, skjaldarmerki, þjóðsöng og þjóðarrétt. 

Fréttamenn skólans fylgdust með vinnunni í stofunum, tóku viðtöl og söfnuðu upplýsingum um löndin sex sem urðu til í verkefnavinnunni. Hugmyndir nemenda voru mjög ólíkar og greinilegt að hóparnir höfðu lagt mikla vinnu í verkefnið. 

Í fyrsta hópnum voru Svandís, Viktor og Atli. Landið þeirra heitir Sviktali en nafnið er sett saman úr nöfnum þeirra. Landið leggur áherslu á hreint og snyrtilegt umhverfi og endurspeglast það í hugmyndum hópsins. Þjóðfáninn er svartur, grænn og rauður þar sem hvert þeirra valdi sinn lit. Tungumálið einkennist af stöfum sem eru speglaðir og á hvolfi. Þjóðarrétturinn kallast Drekabitar, kjúklingabitar bornir fram með sterkri sósu. 

Í öðrum hópnum voru Þröstur og Hafþór sem sköpuðu Halldóruland. Í landinu snýst margt um nafnið Halldór og samkvæmt lögum landsins mega aðeins þeir sem heita Halldór eða Halldóra stjórna landinu. Þjóðfáninn er svartur og hvítur og sögðu nemendur litina tengjast beltakerfi bardagaíþrótta. Hópurinn vakti athygli fyrir skýrar hugmyndir og skemmtilega framsetningu. 

Í þriðja hópnum voru Inga, Arný og Mattías sem sköpuðu land þar sem kuldi og snjór eru ráðandi einkenni. Skjaldarmerkið sýnir snævi þakta eyju með mörgæsum og jöklum. Litir þjóðfánans eru hvítur, blár og fjólublár sem undirstrika kalda ásýnd landsins. Þjóðarrétturinn er myntuís með Oreo-kexi sem þótti bæði óvenjuleg og skemmtileg hugmynd. 

Í fjórða hópnum voru Rósa, Evelyn og Ísak. Landið þeirra heitir Hissonia. Skjaldarmerki landsins er snákur og þjóðfáninn er rauður, svartur, gulur og grár. Í Hissoniu eru sérstök lög um góða umgengni við dýr og er landið konungsríki þar sem elsti erfingi tekur við stjórn. Landið er í laginu eins og Ísland nema því hefur verið snúið á hvolf. Tungumálið kallast „R-mál“ þar sem allar setningar byrja á bókstafnum R. Þjóðarrétturinn er mexíkósk kjúklingasúpa. 

Í fimmta hópnum voru Rikki, Magnús og Oliver sem hönnuðu landið Shmeckland. Íbúar landsins þurfa samkvæmt reglum að vera með smekk þegar þeir borða og skjaldarmerkið er einnig smekkur. Þjóðfáninn er svartur, grænn og rauður. Þjóðarrétturinn er snitsel með kartöflumús. Nemendur sögðu einnig frá kindinni Bob sem býr í landinu og getur talað öll tungumál heimsins. Tungumál landsins er blanda af mörgum tungumálum og landið sjálft er í laginu eins og smekkur. 

Í sjötta hópnum voru Erik, Stefán, Breki og Héðinn. Landið þeirra heitir Shebland og er nafnið myndað úr upphafsstöfum stjórnenda landsins. Þjóðfáninn og skjaldarmerkið eru hvít og fjólublá. Nemendur lögðu áherslu á sterka trú og samheldni í samfélaginu. Landið er gróðursælt og umlukið fjöllum. Þjóðarrétturinn er pastarör með beikoni, pepperóní, rjómaosti og piparosti. Konungur landsins heitir Jónas Haglabyssu Drekason. 

Þemadagarnir hafa einkennst af góðri samvinnu, fjölbreyttum hugmyndum og skapandi vinnu. Verkefnið gaf nemendum tækifæri til að vinna saman og þróa eigin samfélög með sínum eigin reglum, menningu og hefðum. 
 
Myndir sem að fréttamaður tók má finna hér : 
Þemadagar – Draumalandið – Google Photos 
 
Fyrir hönd Hlíðarskólafrétta 

Axel Dusan Þorgilsson