Líf og fjör á lokaspretti skólaársins
Venju samkvæmt var margt um að vera síðustu vikur skólaársins í Hlíðarskóla. Nemendur og starfsfólk nutu fjölbreyttra verkefna og viðburða sem settu skemmtilegan svip á lokasprettinn.
Bekkir skólans fóru í skólaferðalög og dagsferðir sem heppnuðust afar vel. Ferðirnar gáfu nemendum tækifæri til að efla samveru, upplifa nýtt umhverfi og skapa góðar minningar með skólafélögum sínum.
Þemadagar voru á sínum stað þar sem nemendur fengu að takast á við fjölbreytt verkefni og vinna saman á skapandi og skemmtilegan hátt. Þá fóru nemendur einnig í íþróttatíma í Skautahöllinni þar sem þeir fengu að reyna fyrir sér á skautum og njóta hreyfingar í nýju umhverfi. Farið var í heimsókn í 600 klifur auk þess sem farin var umbunarferð í Daladýrð þar sem nemendur sem höfðu safnað tilskildum fjölda Trölla fengu verðskuldaða viðurkenningu. Ferðin var einstaklega vel heppnuð og vakti mikla ánægju meðal þátttakenda. Þetta er aðeins brot af því sem einkenndi síðustu vikur skólaársins.
Lokadagar skólaársins voru því bæði viðburðaríkir og ánægjulegir og skildu eftir margar góðar minningar hjá nemendum og starfsfólki áður en sumarfríið tók við.
Myndaalbúm frá vordögum 2026