Skólaslit
Skólaslit Hlíðarskóla fóru fram mánudaginn 9. júní við hátíðlega athöfn þar sem nemendur, starfsfólk og fjölskyldur komu saman og fögnuðu lokum skólaársins.
Við þetta tækifæri voru fimm nemendur úr 10. bekk útskrifaðir úr grunnskóla. Við óskum þeim innilega til hamingju með áfangann og óskum þeim alls hins besta á nýjum vettvangi í framhaldsskóla.
Einnig voru tveir starfsfélagar kvaddir við athöfnina, þeir Sævar Helgi og Bjössi. Þeim voru færðar þakkir fyrir góð og farsæl störf í þágu skólans og nemenda hans. Við þökkum þeim kærlega fyrir samstarfið og óskum þeim velfarnaðar á komandi árum.
Hlíðarskóli óskar öllum nemendum, starfsfólki og fjölskyldum gleðilegs sumars og hlakkar til að taka á móti nemendum að nýju á komandi skólaári.

Fleiri myndir frá skólaslitum má sjá hér.