Styrkur Norðurorku til samfélagsverkefna 2023
Hlíðarskóli fékk úthlutað styrk frá Norðurorku 26. janúar sl. og erum við afskaplega þakklát.
Alls bárust 125 umsóknir og var Hlíðarskóli einn af 58 verkefnum sem fengu styrk.
Hlíðarskóli er eini sérskóli Akureyrarbæjar og leggjum við mikla áherslu á að nemendur okkar fá kennslu sem byggir á fjölbreytni og tekur tillit til mismunandi þarfa nemenda okkar.
Við munum því nota styrkinn til kaupa á búnaði til kennslu og sköpunar sem fylgir ekki hefðbundnu skólastarfi
Meðfylgjandi er frétt um styrkafhendinguna