Jólagluggamálun
í síðustu viku fóru nemendur úr Hlíðarskóla tvær ferðir, á mánudegi og fimmtudegi, í Pennann Eymundsson til að mála glugga þar. Síðustu 14-15 ár hefur Hlíðarskóli verið í samstarfi við Pennan Eymundsson að skreyta glugga þar fyrir jólin og hefur Ólafur Sveinsson, mynd- og handmenntakennari Hlíðarskóla, staðið fyrir og stýrt verkefninu. Í ár urðu íslensku jólasveinarnir fyrir valinu og fengu Gríla og Leppalúði að fylgja með, ásamt jólakettinum. Við gerð þeirra var horft til ýmissa fyrri túlkana á þeim félögum, svo sem MS jólasveina og annara. Allar myndirnar eru gerðar fríhendis útí skóla á maskínupappír. Myndirnar voru svo límdar utan á gluggana og málaðar/litaðar með Posca-pennum á gluggana, teknar í gegn á glerið.



Þeir Nemendur sem unni verkið eru:
- Axel Dusan Þorgeirsson
 - Aron Máni Björnsson
 - Ágúst Hrafn Árnason
 - Egill Ingimar Þórarinsson
 - Héðinn Dagur Bjarnason
 - Logi Már Ragnarsson
 - Sigurður Elí Ólafsson
 
Aðrir höfundar mynda:
- Auðunn Frans Auðunsson
 - Hartmann Logi Stefaníuson
 - Þórhallur Darri Sigurjónsson
 - Matthías Óli Hinriksson
 
Við vonum að sem flestir fari og sjái skreytingarnar í Pennanum.
Að lokum læt ég fylgja kveðju af því plaggi sem fylgir með myndunum.
Takk fyrir okkur. Megið þið njóta skammdegisins og hátíðana er þær upp renna.
Ólafur Sveinsson