Ljóðaverkefni
Í tilefni að Degi íslenskrar tungu unnum við ljóðaverkefni tengt Dalvísu Jónasar Hallgrímssonar. Afraksturinn má sjá hér
Þar sem við tökum flugið
Í tilefni að Degi íslenskrar tungu unnum við ljóðaverkefni tengt Dalvísu Jónasar Hallgrímssonar. Afraksturinn má sjá hér
Ágætu foreldrar og forráðamenn nemenda Hlíðarskóla.
Þá er komið að byrjun nýs skólaárs en það hefst formlega með skólasetningu þriðjudaginn 21.08.2018 kl. 13.00
Allir nemendur koma á sama tíma og mun skólastjóri hafa nokkur orð í byrjun en síðan fara nemendur með sínum umsjónarkennara í stofurnar þar sem farið verður m.a. í stundartöflur og rútuhringinn og tímasetningar tengdar honum.
Skóli hefst svo samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 22.08.2018.
Í dag boðaði fræðsluráð Akureyrarbæjar til samkomu í Menningarhúsinu Hofi – Hömrum, þar sem nemendum, kennurum og starfsmönnum við skóla Akureyrarbæjar var veitt viðurkenning fyrir að hafa skarað fram úr í starfi. Þetta var í níunda sinn sem fræðslusvið stendur fyrir samkomu sem þessari en hún er í samræmi við áherslur í skólastefnu Akureyrarbæjar.
Það er gaman að segja frá því að Ásbjörn Garðar nemandi í 5.bekk hlaut viðurkenningu fyrir einstaka samviskusemi í námi og framfarir í félagsfærni.
Innilega til hamingju með viðurkenninguna Ásbjörn.
Yngri deildir fara í skólaferðalag þriðjudaginn 5.júní.
Eldri deildir fara í skólaferðalag miðvikudaginn 6.júní
Skólaslit fara svo fram fimmtudaginn 7.júní kl. 10:00
Nú er vorið komið í Hlíðarskóla og fuglarnir farnir að syngja sinn söng fyrir þá sem heyra vilja.